Uppboð Reykjavíkurborg - Vinnuvélar og tæki #5

Hlutur# 2484

Reykjavíkurborg

Spuma Gróðureyðingarvél

Notifications are Off

Spuma Gróðureyðingarvél.

Til sölu er sérhæfður búnaður fyrir umhverfisvæna gróðurseyðingu, merkt „Góði eyðirinn“ og í eigu Reykjavíkurborgar. Um er að ræða heildarkerfi þar sem notast er við heitt vatn og hitaþenslufroðu til eyðingar á óæskilegum gróðri.

Kerfið samanstendur af:

Tveimur stórum vatnstönkum með festingum og tengingum

Froðugjafa- og hitatæki

Slöngukerfi með drifsnúru og rafknúnu snúruhjóli

Stýribox með viðmóti

Ramma fyrir flutning og festingar á pall eða tækjabíl

Ástand kerfis er óvitað, en lítur út fyrir að vera í tiltölulega góðu ásigkomulagi miðað við myndir. Selst í því ástandi sem það er.

Varðandi að skoða tæki: Hafið samband við [email protected] eða í spjallinu hér niðri hægra megin á síðunni

Skilmálar:
-Bjóðendur eru hvattir til þess að að skoða uppboðsmuni áður en tilboð eru gerð
-Rík skoðunarskylda hvílir á bjóðendum
-Engin ábyrgð er tekin á ástandi tækisins
-Við minnum á að öll boð eru bindandi
-Kaupandi ber ábyrgð á því að sækja uppboðsmun
-Uppbod.com hefur ekki prófað eða athugað virkni hlutarins

Uppboði lokið

Hefst eftir

Kaupendavernd
  • Greiðslan þín er örugg!
  • Við auðkennum alla seljendur
  • Uppboðskráningar eru yfirfarnar
Sjá meira
Greiðslur
Top